Óvissustig Almannavarna vegna Skaftárhlaups.
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi lýsir yfir óvissustigi Almannavarna vegna Skaftárhlaups. Rafleiðni í Skaftá hefur hækkað hægt síðustu daga og vatnshæð og rennsli árinnar við Sveinstind aukist. Síðast hljóp úr katlinum í september 2021 en hlaupin úr vestari katlinum eru að jafnaði minni en hlaupin úr þeim eystri. Ferðafólki er eindregið ráðlagt að […]