Merki Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra byggir á alþjóðlegu tákni almannavarna, sem er blár jafnarma þríhyrningur á rauðgulum fleti. Merki almannavarnadeildarinnar ber skjaldarmerki Íslands. Á því eru landvættirnar fjórar úr Heimskringlu Snorra Sturlusonar, griðungur, hægra megin skjaldarins, bergrisi vinstra megin, gammur hægra megin, ofan við griðunginn, og dreki vinstra megin, ofan við bergrisann.
Þessar fjórar yfirnáttúrulegu furðuverur standa vörð um hvern landsfjórðung fyrir sig og sem skjaldberar skjaldarmerkisins standa þær sem slíkar. Skjaldarmerkið sjálft sem er auðkenni stjórnvalda ríkisins er skjöldurinn með íslenska fánanum.
Allt það sem auðkennt er með almannavarnamerkinu nýtur sérstakrar verndar samkvæmt Genfar-sáttmálanum.
Blár jafnarma þríhyrningur á rauðgulum fleti er alþjóðlegt tákn almannavarna. Enginn má á neinn hátt tálma því að maður gegni starfi sem hann hefur verið kvaddur til í þágu almannavarna. Hver sá sem starfar undir merkinu ber tilteknar skyldur eftir lögum hvers lands og nýtur jafnframt ákveðins réttar.
Allt það sem auðkennt er með merkinu nýtur sérstakrar verndar samkvæmt Genfar-sáttmálanum. Starfsfólk, búnaður og byggingar í þágu almannavarna er auðkennt með merkinu.
Merkið er ekki aðeins tákn heldur einnig verndartæki. Allt sem ber merkið nýtur verndar samkvæmt alþjóðalögum. Merkið tryggir að borgaraleg verndaraðgerðir séu virtar og ekki ráðist á þær í stríðsástandi.