Á Íslandi er fólk oft ekki á varðbergi gagnvart hættunni sem af eldingum stafar, þar sem þrumuveður eru ekki algeng á Íslandi. Samkvæmt Veðurstofunni er fjöldi eldinga á bilinu 250 – 600 á ári.
Eldingahætta á Íslandi skapast aðallega við þrumuveður en einnig við eldgos.
Þegar eldgos verður undir jökli, sjó eða vatni verða meiri eldingar en ella. Eldingar í slíkum gosum verða vegna rafhleðslu í gosmekkinum. Hleðslan verður til í gígnum við samspil vatns og kviku. Gosmökkurinn verður rafhlaðinn og hleðslan losnar í eldingar; eða með öðrum orðum, það verður skammhlaup.
Oftast hlaupa eldingar milli staða í mekkinum sem hafa misjafna rafhleðslu en stundum til jarðar. Eldingahætta frá gjósandi eldstöð er mest í gosmekkinum sjálfum og getur náð í allt að 30 – 40 km. undan vindi frá eldstöðinni. Farið ekki undir gjóskufall, vegna eldingahættu og munið að algert myrkur getur verið í öskumekki. Eldingahætta er mest í eða við gosmökk og öskufallsgeira og getur náð í allt að 30 – 40 km. undan vindi frá eldstöðinni. Komið ykkur stystu leið út úr gjóskufalli með því að fara þvert á vindátt.
Í eldingu er rafstraumur, frá því að vera nokkur þúsund Amper (A) upp í allt að 200 kA (200.000 A) eða jafnvel hærri. Rafstraumurinn jónar andrúmsloftið og hitar það upp í allt að 30.000 K (Kelvin). Eldingar vara mjög stutt, einungis fáar míkrósekúndur en geta valdið verulegu tjóni.
Sem dæmi um mögulegar afleiðingar eldinga má nefna:
Áhrif eldinga eru ekki bundin við þann stað þar sem eldingunni slær niður, heldur geta t.a.m. rafstrengir í jörðu og lofti dreift áhrifunum og valdið skaða allt að 1-2 km frá þeim stað þar sem eldingunni slær niður.
Tíðni eldinga á Íslandi er ekki mikil og því hefur að jafnaði ekki verið mikið hugað að hönnun eldingarvarna við bygginar hérlendis, þó finnast hús þar sem eldingavarnir hafa verið settar upp t.d. hús Sjómannaskólans í Reykjavík. Sömuleiðis eru eldingavarnir í flestum háspennuvirkjum sem og á hluta af háspennulínum á Íslandi.
Reynið að koma ykkur strax í skjól í þrumuveðri
Þar sem eldingu getur slegið niður í rafleiðandi lagnir utanhúss og leitt þær inn í hús þá skal:
Forðist að nota vatn úr vatnsleiðslum (hvort sem er við uppvask, handþvott, svo og klósett, sturtu eða bað).
Í eldingaveðri skal hafa í huga:
Rafspenna situr ekki í þeim sem hefur orðið fyrir eldingu og því má veita nauðsynlega aðstoð strax. Veitið skyndihjálp og hringið í 112.
Vegna eldinga sem fylgja eldgosum er ástæða til að setja eldingavara á hús til að minnka líkur á að eldingum slái niður í þau. Leitið til rafvirkja vegna uppsetningar á eldingavara og rafveitur vegna rafskauta.
Eldingavarar á byggingum (frá Mannvirkjastofnun)
vær megin aðferðir eru nýttar til að verjast tjóni af völdum eldinga.
Í fyrsta lagi eru eldingar fangaðar, ýmist með stöngum eða vírum og leiddar beint til jarðar. Hins vegar eru til sérstakir yfirspennuvarar (e. surge arrester, n. overspennings beskytter) sem eru tengdir við rafleiðara og leiða straum til jarðar ef spenna fer yfir ákveðin mörk.
Í báðum tilvikum er byggt á því að leiða strauminn til jarðar í gegnum jarðskaut. Jarðskaut húsa eru venjulega útfærð með koparleiðurum og eða stöngum sem eru grafin og rekin í jörðu auk sambindingar við pípukerfi húss og járnabindingu í sökkli.
Jarðbindikerfi bygginga eru hluti af raflögn og því ætti öll vinna við tengingingar eða breytingar á jarðbindikerfi að vera unnin af löggiltum rafverktaka eins og önnur vinna við raflögn bygginga.
Tekið er til skoðunar dæmigert íbúðarhús u.þb. 200 m2 á einni hæð sem staðsett er í dreifbýli. Hér er ætlunin að bæta eldingavörn hússins gagnvart eldingum sem kynnu að slá beint í húsið. Vörnin felst í eftirfarandi:
Til frekari varnar má bæta við yfirspennuvörum á inntak frá rafveitu. Þá yfirspennuvörn ætti rafvirki hússins að setja upp í aðaltöflu eða í millitengikassa við inntak í samráði við dreifiveitu. Jarðtenging yfirspennuvarnar inntaks skal trygglega jarðbundin.
Sambærilega vörn er einnig mögulegt að setja á símalínur. Tjón af völdum yfirspennu á símalínum er þó minna að jafnaði en vegna yfirspennu á raflögn húss.
Að lokum skal minnt á að rangt uppsettar eldingavarnir geta valdið tjóni og því er mjög mikilvægt að öll vinna við eldingavarnir, sérstaklega sú vinna sem lýtur að raflögn og jarðtengingum bygginga, sé unnin af löggiltum rafverktökum.