Almannavarnarstig

Alvarleikastig atburðar

Almannavarnastigin lýsa alvarleika og eru þrjú, óvissustig, hættustig og neyðarstig.

Skýringarmynd um stigakerfi almannavarna

Alvarleikastig atburðar

Almannavarnastigin lýsa alvarleika og eru þrjú.

  • Þegar afla þarf upplýsinga um menn sem óvissa ríkir um.
  • Þegar skip, loftfar eða menn hafa ekki komið fram á ákvörðunarstað eða ekkert heyrst frá þeim í tiltekinn tíma.
  • Þar sem óvissa ríkir um öryggi skips eða loftfars og þeirra sem í því eru.
  • Þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða mannavöldum sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað.
  • Þegar sóttvarnaryfirvöld meta þörf á að hefja undirbúning að viðbúnaði vegna farsótta samkvæmt ráðleggingum Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar (WHO).

  • Þegar viðhafa þarf tafarlaus viðbrögð vegna manna sem óttast er um.
  • Þegar ítrekaðar tilraunir til að hafa samband við skip, loftfar eða menn hafa reynst árangurslausar og óttast er að viðkomandi sé í neyð.
  • Þegar staðfestar upplýsingar hafa borist um að skip, loftfar eða menn séu í neyð eða yfirvofandi hættu og þarfnist tafarlausrar aðstoðar.
  • Þegar slys eða hamfarir hafa orðið eða þegar heilbrigðisöryggi manna er ógnað svo sem vegna farsótta.

Forgangur viðbragðs

Þörf á forgangshraða viðbragðsaðila ræðst af alvarleika slyss eða atburðar. Við boðun viðbragðsaðila vegna almannavarnaaðgerða er notast við eftirfarandi skilgreiningar á forgangi.

F4 – Ekki forgangur.

F3 – Lítill hraði.

F2 – Mikill hraði.

F1 – Mesti hraði.

Umfang atburða

Umfang almannavarnaviðbragða er gefið til kynna með eftirfarandi litum: Grænt, gult, rautt eða svart. Litirnir gefa til kynna hversu mikils viðbúnaðar sé þörf, svo sem fjölda þeirra eininga sem eru virkjaðar í þágu almannavarna í hvert sinn, þörfina fyrir samhæfingu og fjölda stjórnstiga.

Slysi eða atburði er sinnt af fáum viðbragðsaðilum eða stofnunum þar sem dagleg skipan mála á viðbúnaði er nægjanleg til þess að eiga við verkefnið. Daglegar bjargir í umdæminu sinna atvikinu án aukins viðbúnaðar.

Alvarlegt slys eða atburður svo sem leit á einu svæði eða þörf er á að margir viðbragðsaðilar eða stofnanir sinni verkefninu. Umfang þar sem daglegar bjargir í umdæminu sinna atvikinu auk þátttöku valinna bjarga.

Mjög umfangsmikið slys eða atburður svo sem leit eða björgun við erfiðar aðstæður eða á mörgum svæðum. Þörf á aðkomu mikils fjölda viðbragðsaðila eða stofnana og aukin þörf á samhæfingu og stjórnskipulagi almannavarna. Umfang þar sem daglegar bjargir í umdæminu þurfa utanaðkomandi aðstoð.

Þjóðarvá, hamfarir eða atburðir sem hafa áhrif á mörg umdæmi á sama tíma.