Húshitun

Ef húshitun bregst getur hitastig innandyra fallið hratt, sérstaklega yfir köldustu mánuðina. Flest heimili reiða sig á heitt vatn til upphitunar og því getur truflun á hitaveitu haft veruleg áhrif á aðstæður á heimilum.

Undirbúningur snýst um að draga úr hitatapi, halda hita sem best og vernda heilsu fólks. Mikilvægt er að vita hvernig megi halda einum hluta heimilisins hlýjum, hvernig bregðast skuli við langvarandi kulda og hvenær rétt sé að leita annarra lausna.

Verum viðbúin ef húshitun bregst

Viðbúnaður snýst einnig um að sýna samstöðu og styðja þá sem ekki geta tryggt öruggar aðstæður sjálfir.