Ýmsar gastegundir fylgja gjarnan eldgosum t.d. H2S, CO2, CO, SO2, HCl, H2SO4 og geta valdið óþægindum. Brennisteinsvetni H2S er litlaus gastegund með óþægilegri lykt eins og úldið egg. Þegar styrkurinn eykst hverfur lyktin, við þau mörk verður hann hættulegur heilsu manna og jafnvel lífshættulegur (mjög eitrað).
Sama má segja um CO2 koldíoxíð, sem er litlaus gastegund og getur safnast í lægðir við gufuhveri og á eldgosasvæðum. Þessi gastegund er þyngri en loft og í logni geta eiturgös og gufur safnast fyrir í lægðum og djúpum lautum.
Brennisteinstvíildi SO2 er einnig litlaus lofttegund með sterkri lykt sem getur haft áhrif á húð, augu og öndunarfæri.
Náttúruleg uppspretta þessara efna berst út í andrúmsloftið til dæmis frá eldgosum, skógar- og gróðureldum. Af mannavöldum er uppsprettan helst frá bruna á eldsneyti og alls konar iðnaði.
Við stóraukinn styrk þessara efna er varnarbúnaður eins og gasmælar, gasgrímur og hlífðargleraugu nauðsynlegur því þessar lofttegundir geta valdið skaða á lífi og heilsu manna. Þessar lofttegundir geta einnig verið skaðlegar dýrum og eyðilagt gróður.
Bregðast þurfti við eitruðu gasi sem dreifðist frá eldgosinu í Holuhrauni árin 2014 – 15 með viðvörunum til íbúa. Ráðleggingar um viðbúnað og viðbrögð við SO2 frá eldgosum má sjá á töflunni og textanum hér fyrir neðan.
Almennar ráðleggingar
Viðmiðunarmörk vegna atvinnustarfsemi vegna eitraðra gastegunda (Vinnueftirlitið).
Mengunarmörk eru hæsta leyfilega meðaltalsmengun (tímavegið meðaltal) í andrúmslofti starfsmanna við 8 klst., eða 15 mínútna viðveru.
Mengunarmörk eru gefin upp í ppm (parts per million) þar sem 10.000 ppm er jafngilt 1%, einnig er miðað við milligrömm efnis í hverjum rúmmetra af lofti.
8 klst mengunarmörk eru 5 ppm (7mg/m3). 15 mínútna mengunarmörk eru 10 ppm (14mg/m3)
Eitrunareinkenni eru m.a:
Við 20-50 ppm má reikna með ógleði og lyktarskyn slævist.
Við 100-200 ppm er bráðahættuástand þá hverfur lyktarskyn og erting öndunarfæra vex.
Við 250-500 ppm verða menn sljóir. Meðvitundarmissir verður við 500 ppm.
Við 1000 ppm verður öndunarlömun (banvænt).
Mengunarmörkin eru 0,5 ppm (1,3 mg/m3) fyrir 8 klst., en 1ppm (2,6 mg/m3) fyrir 15 mín.
Við 100 ppm styrk er efnið lífshættulegt.
Koltvísýringur lækkar súrefnisinnihald lofts sem hann blandast og veldur þannig súrefnisskorti, en getur einnig valdið eitrunareinkennum við háan styrk.
Mengunarmörkin eru 5.000 ppm (4.500 mg/m3) fyrir 8 klst., en 10.000 ppm (9.000 mg/m3) fyrir 15 mín.
Mengunarmörkin eru 25 ppm (29mg/m3) fyrir 8 klst., en 50 ppm (58 mg/m3) fyrir 15 mín.
Við 100 ppm er CO hættulegt heilsu.
Við 800 ppm, sljóleiki, verkir, dofi.
Við 1.600 ppm (0,16%), höfuðverkur, sljóleiki, dauði innan 2 klst.
Brennisteinssýra er ætandi á slímhúð öndunarfæra, munns, augna og einnig húðar í nægjanlegum styrk.
Mengunarmörkin eru 1mg/m3 fyrir 8 klst., en 2 mg/m3 fyrir 15 mín.
Mengunarmörkin fyrir úða sem kemst niður í barka eru 0,05mg/m3 fyrir 8 klst., en 0,1 mg/m3 fyrir 15 mín.
Bregðast þurfti við eitruðu gasi sem dreifðist frá eldgosinu í Holuhrauni árin 2014 – 15 með viðvörunum til íbúa. Ráðleggingar um viðbúnað og viðbrögð við SO2 frá eldgosum má sjá á töflunni og textanum hér fyrir neðan.