Af óvissustigi Almannavarna vegna veðurs á Ströndum og Norðurlandi
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, aflýsir óvissustigi Almannavarna vegna veðurs þar sem spáð var norðanátt með slyddu og snjókomu. Áfram eru í gildi gular viðvaranir á Austurlandi að Glettingi, Suðausturlandi og Miðhálendinu og er fólk hvatt til að fylgjast með veðurspá á http://www.vedur.is og færð á vegum á […]
Af óvissustigi Almannavarna vegna jökulhlaups úr Mýrdalsjökli
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, aflýsir óvissustigi Almannavarna vegna jökulshlaups úr Mýrdalsjökli. Rafleiðni og vatnshæð hefur farið lækkandi í Skálm frá því seinni partinn 9. september og nálgast rafleiðni nú aftur eðlileg gildi.