Óvissustigi Almannavarna aflýst á Vestfjörðum

Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Vestfjörðum aflýsir óvissustigi Almannavarnna vegna skriðu- og grjóthrunshætta á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum. Kólnað hefur í veðri og ekki er lengur talin hætta á skriðum og grjóthruni á svæðinu. Vegfarendur eru beðnir um að fara áfram varlega og taka mið af aðstæðum.