Af hættustigi á óvissustig Almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra vegna eldgossins austur af Stóra-Skógfelli, sem er lokið.
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig vegna eldgossins austur af Stóra Skógfelli, sem er lokið. Fyrr í dag flaug starfsmaður Almannavarnasviðs dróna yfir eldstöðvarnar, á þeim myndum sést að engin virkni er sjáanleg í gígnum. Eldgosið sem hófst 20. nóvember sl. stóð yfir í […]