Fjöldahjálparstöðvar á Seyðisfirði og í Neskaupstað / Rýmingar / Ástand vega
Fjöldahjálparstöðvar Fyrr í dag opnaði Rauði Krossinn fjöldahjálparstöðvar bæði í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Vel hefur gengið að koma íbúum fyrir og flestir gátu gist hjá vinum og ættingjum. Rúmlega 100 íbúar skráðu sig í fjöldahjálpastöðina í Neskaupsstað og um tíu á Seyðisfirði. Fjöldahjálparstöð á Seyðisfirði er í Herðubreið og í Egilsbúð í Neskaupsstað. Íbúar […]
Veðurstofan hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum og hættustig á Seyðisfirði og í Neskaupstað
Eins og fram kemur á vef Veðurstofunnar þá tók óvissustig gildi klukkan 12 í dag vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum. Ákveðnir reitir á Seyðisfirði og í Neskaupsstað verða rýmdir. Rýming tekur gildi kl. 18:00. Ítarlegri upplýsingar á hvaða reitir það eru sem rýma á – er hægt að nálgast á vef Múlaþings á www.mulathing.is og á […]
Rýmingar á Seyðisfirði og í Neskaupsstað
Ákveðið hefur verið að rýma ákveðin svæði bæði á Seyðisfirði og í Neskaupsstað frá klukkan 18:00 í dag. Íbúar á þessum svæðum eru hvattir til að vera sem minnst á ferðinni meðan veðrið gengur yfir. Á vef Veðurstofunnar kemur fram að appelsínugul viðvörun vegna veðurs er á Austurlandi. Ítarlegri upplýsingar um hvaða reitir eiga að […]