Auknar líkur á eldgosi á Sundhnúksgígjaröðinni. Hættustig Almannavarna.
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að fara á hættustig Almannavarna þar sem líkur á nýju eldgosi á Sundhnúksgígjaröðinni hefur aukist. Á vef Veðurstofunnar kemur fram að magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálgast það magn sem fór þaðan í síðasta eldgosi. Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni hefur aukist hægt frá goslokum 9. […]