Neyðarstig Almannavarna vegna eldgoss á Reykjanesskaganum.

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákveðið að fara á neyðarstig vegna eldgoss við Sundhnúkagígaröð. Eldgos hófst fyrir stuttu rétt fyrir ofan varnargarðinn við Grindavík. Samhæfingarstöð Almannavarna var virkjuð á áttunda tímanum í morgun þegar ljóst var að kvikuhlaup var hafið.  Þyrla Landhelgisgæslunnar er farin í loftið.

Samhæfingarstöð Almannavarna virkjuð. Kvikuhlaup hafið á Reykjanesskaganum.

Samhæfingarstöð Almannavarna var virkjuð á áttunda tímanum í morgun þegar ljóst var að kvikuhlaup var hafið á Reykjanesskaganum.  Á þessari stundu er ekki hafið eldgos en þyrla Landhelgisgæslunnar er tilbúin að fara í loftið. Samkvæmt vef Veðurstofunnar hófst áköf jarðskjálftahrina kl. 6.30 í morgun á Sundhnúksgígaröðinni. Skjálftahrinan er staðsett á milli Sýlingarfells og Stóra-Skógfells. Skjálftavirknin […]