Nýtt áhættumat – 2. apríl 2025
Meðfylgjandi er uppfært áhættumat sem meðal annars tekur tillit til hættumats Veðurstofu Íslands frá 4. mars, sem er óbreytt frá fyrra hættumati. Samkvæmt c. lið 3. gr. laga nr. 40/2024 um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ er eitt verkefna nefndarinnar gerð áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavíkurbæ í samvinnu við ríkislögreglustjóra. Áhættumat þetta snýr fyrst og fremst að þéttbýli […]
Jarðkönnun Grindavíkur – lokaskýrsla
Samkvæmt e-lið 1. mgr. 3. gr. laga nr. 40/2024 um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa við Grindavíkurbæ er eitt af verkefnum nefndarinnar að annast um könnun á jarðvegi/jarðskoðun vegna jarðhræringanna sem skekið hafa Grindavíkurbæ og nágrenni. Þetta er verkefni sem almannavarnir/embætti ríkislögreglustjóra hóf áður en nefndin tók til starfa þann 1. júní 2024, en nefndin og almannavarnadeild […]