Nýtt áhættumat – 9. apríl 2025
Samkvæmt c. lið 3. gr. laga nr. 40/2024 um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ er eitt verkefna nefndarinnar gerð áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavíkurbæ í samvinnu við ríkislögreglustjóra. Áhættumat þetta snýr fyrst og fremst að þéttbýli Grindavíkur í samræmi við áður tilgreint ákvæði laga um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík en önnur svæði eru einnig […]