Slæmt veður framundan – Óvissustig Almannavarna

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna frá og með kl. 18:00 í kvöld, mánudaginn 2. júní, vegna norðanáhlaups sem spáð er næsta sólarhringinn. Spáð er norðan hvassviðri með hvössum vindhviðum, sem getur skapað hættulegar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig vind. Á ákveðnum svæðum er […]