Af neyðarstigi á hættustig vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að færa almannavarnastig af neyðarstigi á hættustig vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram en samkvæmt mælum á gosóróa hefur dregið úr krafti þess síðan í morgun. Gróðureldarnir eru nú metnir mesta hættan í byggð en mengun […]
Eldgos hafið við Sundhnúksgígjaröðinni – Neyðarstig Almannavarna
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að fara á neyðarstig Almannavarna vegna eldgoss sem hófst rétt í þessu á Sundhnúksgígjaröðinni. Upptökin eru suðaustan við Litla-Skógfell. Fyrr í kvöld fóru Almannavarnir á hættustig þar sem miklar líkur voru taldar á eldgosi.
Hættustig Almannavarna vegna jarðhræringa á Sundhnúksgígjaröðinni.
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að fara á hættustig Almannavarna þar sem líkur á eldgosi á Sundhnúksgígjaröðinni hefur aukist. Á vef Veðurstofunnar kemur fram að kvikuhlaup sé hafið á Sundhnúksgígaröðinni. Þar kemur einnig fram að áköf jarðskjálftahrina stendur yfir í Sundhnúksgígaröðinni og benda gögn til þess að kvikuhlaups sé hafið og líklegt er […]