Af hættustigi á óvissustig Almannavarna – níunda eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni lokið.

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hafa ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig vegna umbrota á Reykjanesi. Níunda eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni er nú lokið og virkni í gígunum hefur dvínað, lítið hefur sést af gasmengun eða gosmóðu nýlega. Á vef Veðurstofunnar kemur fram að lífshættulegt er að ganga á nýstorknuðu hrauni þar […]