Viðbragðsáætlanir

Viðbragðsáætlanir eru lykilverkfæri í undirbúningi og samhæfingu aðgerða þegar almannavarnaástand skapast.

Markmið viðbragðsáætlana er að lágmarka tjón á fólki, umhverfi og eignum og stuðla að skjótu og skilvirku viðbragði viðbragðsaðila. Viðbragðsáætlanir geta annaðhvort tekið til til atburða sem hafa áhrif á landið allt eða afmarkast landfræðilega af umdæmum lögreglustjóra eða einni eða fleiri almannavarnarnefnd sveitarfélaga. 

Samkvæmt lögum ber einstökum ráðuneytum, sveitarfélögum og stofnunum á þeirra vegum að gera viðbragðsáætlun. Í henni skal gerð grein fyrir aðgerðum í almannavarnaástandi. Almannavarnanefndir sveitarfélaga bera einnig ábyrgð á gerð viðbragðsáætlana fyrir þeirra svæði sem skulu byggja á hættumati viðkomandi svæðis. Viðbragðsáætlanir innihalda meðal annars upplýsingar um virkjun áætlunarinnar, boðun viðbragðsaðila, fjarskiptaskipulag og til hvaða aðgerða skal grípa á mismunandi almannavarnarstigi. Einkaaðilar hafa jafnframt unnið séráætlanir sem taka til tiltekins atburðar á afmörkuðum stað og tengist þeirra starfsemi.

Viðbragðsáætlanir sem byggja á lögum um almannavarnir nr. 82/2008 skulu unnar í samvinnu við Ríkislögreglustjóra (RLS), sem gefur út fyrirmyndir og leiðbeiningar um gerð þeirra. Þessi samvinna tryggir samræmt verklag og að áætlanir uppfylli lagalegar og faglegar kröfur.

Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra (AVD) hefur skilgreint verklag við gerð viðbragðsáætlana sem lýsir í átta skrefum frá undurbúningi vinnu til undirritunar RLS og kynningu áætlunarinnar. Það miðar að því að tryggja samræmi í vinnubrögðum og efni áætlana. Verklagið byggir á gildandi lögum og reglum og stuðlar að því að allar viðbragðsáætlanir sem undirritaðar eru af RLS uppfylli sömu kröfur.

Boða skal alla viðbragðsaðila sem hlutverki gegna í áætluninni til fundar í áætlunarvinnunni. Sé viðbragðsáætlunin unnin í samvinnu einstakra sveitarfélaga vegna sameiginlegrar hættu eða almannavarnanefndir tveggja eða fleiri sveitarfélaga standa að gerð hennar hefur RLS yfirumsjón með gerð áætlunarinnar.

Gerð viðbragðsáætlana sem undirritaðar eru af RLS er í átta skrefum:

Þegar áætlunin hefur verið fullunnin er hægt að koma henni til AVD ásamt útfylltum Gátlista ábyrgðaraðila við gerð viðbragðsáætlana undirrituðum af RLS á nefangið almannavarnir@almannavarnir.is með ósk um rýni og að ríkislögreglustjóri undirriti áætlunina.

Gera þarf ráð fyrir að áætlunin sé undirrituð og staðfest af öllum viðeigandi aðilum og gerð aðgengileg öllum sem þurfa að nota hana. Þegar viðbragðsáætlun hefur verið staðfest og afhent ríkislögreglustjóra skal hún æfð eftir því sem frekast er kostur.

  1. Inngangur með tilvísun í viðeigandi lög og forsendur áætlunarinnar
  2. Staðhættir á því svæði sem viðbragðsáætlunin nær yfir
  3. Skilgreiningar
  4. Boðun
  5. Stjórnkerfi
  6. Starfssvæði og verkefni þeirra
  7. Sértækur kafli miðað við viðkomandi áætlun (ef þarf)
  8. Verkefni viðbragðsaðila
  9. Fjarskiptaskipulag
  10. Kort
  11. Dreifing
  12. Breytingasaga sem skráir þróun og endurskoðun áætlunarinnar
  13. Viðaukar (ef þarf)
  1. Í gildi eru stjórnskipulagsáætlanir fyrir hvert lögregluembætti sem ná yfir allar almannavarnaraðgerðir og aðrar aðgerðir í umdæmi viðkomandi lögreglustjóra. Atvikaáætlanir eru eftir atvikum unnar fyrir atburði sem þarfnast frekari áætlunargerðar og útfærslu. Þessar viðbragðsáætlanir miðast við stjórnkerfið SÁBF vegna aðgerða á vettvangi og eru til leiðbeiningar um fyrstu viðbrögð en fela ekki í sér endanleg fyrirmæli. Þannig getur lögreglustjóri ákveðið breytta starfstilhögun með tilliti til ástands og aðstæðna hverju sinni.

Mikilvægi stöðugrar endurskoðunar

Viðbragðsáætlanir eru lifandi skjöl sem þarf að æfa og endurskoða reglulega. Breyttar aðstæður, nýtt hættumat og reynsla af æfingum eða almannavarnarástandi geta kallað á breytingar. Því er mikilvægt að viðkomandi ráðuneyti, sveitarfélög, stofnanir og almannavarnanefndir sveitarfélaga haldi áætlunum sínum við og skili þeim til RLS þegar þær hafa verið uppfærðar.

Tengt efni

  • Lög um almannavarnir nr. 82/2008
  • Reglugerð nr. 323/2010
  • Verklagsregla AVD um gerð viðbragðsáætlana undirrituðum af RLS
  • Gátlisti ábyrgðaraðila við gerð viðbragðsáætlana undirrituðum af RLS
  • Sniðmát RLS fyrir viðbragðsáætlanir
  • Viðbragðsáætlanir í gildi
  • Mismunandi vá
  • Æfingar viðbragðsaðilaStjórnerfið SÁBF
  • Hættumat
  • Almannavarnarnefndir sveitarfélaga