Ríkislögreglustjóri gefur fyrirmæli um brottflutning fólks af hættusvæði.
Í skipulagi almannavarna er rýming hluti af mótvægisaðgerðum til að draga úr áhrifum hættu á samfélag og íbúa þess, áður en neyðarástand á sér stað eða á meðan neyðarástand varir. Það felur í sér að íbúar flytja á öruggari stað og síðan að þeir komist öruggir heim aftur í lok neyðarástands.
Í skipulagi almannavarna er rýming hluti af mótvægisaðgerðum til að draga úr áhrifum hættu á samfélag og íbúa þess, áður en neyðarástand á sér stað eða á meðan neyðarástand varir. Það felur í sér að íbúar flytja á öruggari stað og síðan að þeir komist öruggir heim aftur í lok neyðarástands. Til að rýming gangi vel fyrir sig er mikilvægt að til sé áætlun um framkvæmd rýminganna.
Ríkislögreglustjóri gefur fyrirmæli um brottflutning fólks af hættusvæði. Almannavarnir geta sent SMS textaskilaboð í farsíma til að vara við hættu á ákveðnu svæði og upplýsa um rýmingar.
Ef hættusvæði er yfirgefið t.d. heimili vegna ástands húss, snjóflóðahættu eða af annarri vá, eða stærra svæði rýmt að ákvörðun stjórnvalda verður öryggi best tryggt með eftirtöldum aðgerðum:
Munið að klæðast vel og takið með neyðarkassa með helstu nauðsynjum
Athugið hvort nágrannar ykkar þurfi aðstoð, fylgist sérstaklega með hvort aldraðir, fatlaðir og fólk af erlendum uppruna hafi fengið upplýsingar um rýmningu.
Haldið af stað í samræmi við gefin fyrirmæli og fylgið umferðarstraumnum. Akið með fyllstu aðgát.
Takið gangandi flóttafólk með ykkur, ef rými er í bílnum.
Farið í einu og öllu eftir þeim fyrirmælum sem kunna að vera gefin.
Haldið tafarlaust til næstu fjöldahjálparstöðvar og gefið ykkur fram þar. Fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins eru almennt í skólum (sjá lista) og er þar tekið á móti þeim sem þurfa að yfirgefa heimili eða vinnustað og því mikilvægt að vita hvar næsta fjöldahjálparstöð er.
Þeir sem ekki hafa eigið flutningstæki skulu koma sér að næstu fjöldahjálparstöð þar sem flutningar eru skipulagðir.
Athugið: Ef lögreglustjóri gefur út fyrirmæli um rýmingu er íbúum skylt að rýma hús sín. Almannavarnir í héraði opna fjöldahjálparstöð og halda skráningu um dvalarstaði íbúa þar til þeim er heimilt að fara heim.
Tilkynnið að þörf sé á aðstoð við að komast út af svæðinu til næstu lögreglustöðvar eða fjöldahjálparstöðvar.
Ef það er símasambandslaust skal hengja áberandi hvíta veifu út um glugga sem snýr að aðalgötu eða er vel sýnileg.