Sjávarflóð

Flóð við sjávarsíðun fylgja gjarnan djúpum lægðum, sérstaklega þegar vindáhlaðandi er mikill og ágjöf vegna öldugangs, samfara hárri sjávarstöðu.   Í grunnu vatni við ströndina á háflóði getur mikill áhlaðandi og ágjöf samfara hárri sjávarstöðu valdið sjávarflóði með tilheyrandi skemmdum. Hægt er að fylgjast með upplýsingum um veður- og ölduspár á vef Vegagerðarinnar. Sjómælingasvið Landhelgisgæslunnar hefur gefið út sjávarfallatöflur þar sem reiknaður er tími og hæð flóðs og fjöru

Ef hætta er talin á sjávarflóðum

Setjið hlera fyrir þá glugga sem snúa að sjó.

Gerið ráðstafanir til að varna því að vatn geti komið upp úr niðurföllum. Holræsakerfi geta verið viðkvæm þegar öldur og ágjöf eru annars vegar.

Metið öryggi ykkar með hliðsjón af staðsetningu þess húss sem dvalið er í. Ef Veðurstofa Íslands varar við veðri, skal taka það alvarlega.   

Dveljið innandyra á meðan fárviðri geysar og þá hlémegin í íbúðinni.

Verið ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Aflýsið ferðalögum og mannamótum.  Ef skólahald fellur ekki niður sendið þá börn ekki ein í skólann og tryggið að tekið sé á móti þeim.

Fréttir og tilkynningar

Mikilvægt er að fylgist vel með veðurfréttum og tilkynningum í fjölmiðlum.