Rafmagnsleysi

Langvarandi rafmagnsleysi getur orðið af ýmsum ástæðum, til dæmis vegna náttúruhamfara, óveðurs, skemmdaverka, slysa eða bilana í kerfum. Rafmagnsleysi getur haft víðtæk áhrif á daglegt líf og grunnþjónustu, sérstaklega þar sem varaafl er ekki tryggt.

Við þurfum að vera undirbúin fyrir rafmagnsleysi. Mikilvægt er að gera ráð fyrir takmörkuðum samskiptum, minni aðgangi að upplýsingum, erfiðari aðstæðum við matargerð og skertu aðgengi að hita og heitu vatni. Undirbúningur snýst um að geta haldið lágmarksstarfsemi heimilis gangandi og draga úr óvissu þegar á reynir.

Undirbúum okkur fyrir rafmagnsleysi

Til að draga úr áhrifum rafmagnsleysis skiptir máli að huga að lýsingu, matargerð, hleðslu tækja, hitun og samstöðu í nærumhverfinu. Höfum frumkvæði að samtali í okkar nærumhverfi um undirbúning undir langvarandi og umfangsmikið rafmagnsleysi.

Í rafmagnsleysi

Þegar rafmagn fer af er mikilvægt að bregðast rólega við og tryggja fyrst öryggi á heimilinu. Nauðsynlegt er að ganga úr skugga um að allir séu öruggir, nota lýsingu sem ekki felur í sér eldhættu og draga úr notkun á búnaði sem reiðir sig á rafmagn. Einnig þarf að huga að hita, vatni, fjarskiptum og varðveislu matvæla. Með góðum undirbúningi og skýrum viðbrögðum má draga úr áhrifum rafmagnsleysis og auka öryggi heimilisfólks.

Þegar rafmagn kemur aftur á

Þegar rafmagn kemst á aftur er mikilvægt að fara varlega og kanna fyrst hvort allt sé öruggt. Gott er að kveikja smám saman á helstu raftækjum og athuga hvort rafmagn, hiti og heitt vatn virki eðlilega. Einnig er mikilvægt að fara yfir mat í kæli og frysti og meta hvort eitthvað hafi skemmst. Þegar ástandið er orðið stöðugt er gagnlegt að hlaða síma og annan nauðsynlegan búnað og fara yfir hvað gekk vel og hvað mætti bæta í undirbúningi heimilisins.