Matur og neysluvatn

Mikilvægt er að heimili séu undirbúin með birgðir af mat og neysluvatni og geti eldað án rafmagns. Best er að miða við mat sem heimilið notar venjulega og tryggja að birgðir dugi öllum á heimilinu í að minnsta kosti þrjá daga.

Æskilegt er að velja geymsluþolinn og orkumikinn mat sem þarf lítið eða ekkert að elda, svo sem niðursuðuvörur og þurrmat. Slíkan mat skal geyma á köldum, þurrum og dimmum stað og endurnýja birgðir reglulega.

Hver eru áhrif skorts á hreinu neysluvatni

Hætta á magakveisu, niðurgangi, sýkingum og öðrum vatnsbornum sjúkdómum vex.

Handþvottur, þrif og persónulegt hreinlæti skerðast, sem getur aukið smithættu.

Erfitt getur orðið að elda mat, drekka nægilega mikið og tryggja örugga meðhöndlun matvæla.

Heimili, skólar, vinnustaðir og heilbrigðisþjónusta geta átt erfiðara með að starfa eðlilega.

Undirbúningur fyrir skort á neysluvatni

Vatn getur mengast skyndilega eða vatnsveitan hætt að starfa. Með góðum undirbúningi getur þú tryggt öryggi og vellíðan á þínu heimili. Hér eru nokkur lykilatriði sem gott er að hafa í huga:

“Gleymum ekki sérþörfum, svo sem mat fyrir ungbörn eða þá sem eru með ofnæmi eða þurfa sérstakt fæði.”

Komi til skorts á hreinu neysluvatni

Við slíkar aðstæður er mikilvægt að bregðast hratt og skynsamlega við til að tryggja öryggi og lágmarka áhrif á daglegt líf. Forgangsraðaðu notkun vatns og fylgdu leiðbeiningum yfirvalda til að tryggja örugga nýtingu þeirra birgða sem eru tiltækar.

Eftir að neysluvatnið kemst á aftur

Þegar vatnsveita kemst aftur í eðlilegt horf er mikilvægt að ganga úr skugga um að allt sé hreint og öruggt til notkunar. Taktu þér tíma til að hreinsa búnað og endurnýja birgðir svo þú sért betur undirbúin/n fyrir mögulegar truflanir í framtíðinni.

Ef það verður langvarandi neysluvatnsleysi

Stjórnvöld og almannavarnir bera ábyrgð samhæfingu viðbragða við neyðarástandi. Komi til langvarandi skorts á hreinu neysluvatni kann að vera gripið til þess ráðs að skipuleggja neyðarvatnsdreifingu með vatnstönkum og stöðum þar sem hægt er að nálgast hreint vatn af krana. Mikilvægt er að huga að hópum í viðkvæmri stöðu í slíku ástandi og hafa má í huga að íbúar á fjölmennum svæðum geta komið sér saman og skipulagt sameiginlega vatnsgeymslu.

Langtímageymsla vatns

Þú getur geymt drykkjarvatn í allt að eitt ár ef þú bætir við lyktarlausu klórbleikiefni. Notaðu hálfa teskeið fyrir hverja 10 lítra af vatni og drekktu það ekki fyrr en að minnsta kosti hálftíma eftir blöndun. Merkjaðu hverja flösku með dagsetningu fyllingar. Geymdu flöskurnar á köldum, dimmum stað.

Eldað á rafmagns

Ef elda þarf án rafmagns er mikilvægt að gera það með öruggum hætti og fylgja leiðbeiningum framleiðenda. Ef kæli- og frystitæki virka ekki skal nota fyrst mat úr kæli og síðan úr frysti á meðan hann er enn kaldur. Gætum hreinlætis og notum ekki mat ef vafi leikur á gæðum hans.