Neyðarlínan á og rekur TETRA fjarskiptakerfið. Allir viðbragðsaðilar á landinu og þar með talið Almannvarnir nota TETRA sem sitt aðal fjarskiptakerfi. Almannavarnir nota einnig aðgerðagrunn Almannavarna til að halda utan um upplýsingar um aðgerðir og verkefni.
Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra notar talhópana Blár á TETRA til að samhæfa aðgerðir viðbragðsaðila.
Það vísar til Bláabandsins sem var notað yfir upphaflegu samvinnutalhópa TETRA. Með heitinu er vísað í blá ljós viðbragðsaðila. Seinna var sérstöku skipulagi fyrir almannavarnir bætt við, almannavarnamappan. Seinna voru bæði samvinnu skipulög, sameinuð í eitt undir nafninu Blá mappan eða Blár. Allir viðbragðsaðilar og þeir sem hafa hlutverk í viðbragðsáætlunum hafa aðgang að Bláu möppunni. Aðganginum er skipt niður í þrjá flokka; Rauður, Blár, Gulur og hafa aðilar mismunandi aðgang eftir því hvar í kerfinu þeir vinna. Til þess að notendur þekki skipulagið eru allir viðbragðsaðilar að nota Blár möppurnar í daglegu viðbragði.
Það eru samtals 10 bláar möppur í skipulaginu. Allar settar upp á sama hátt og hefur hvert lögregluumdæmi/almannavarnaumdæmi eina möppu til afnota. Allir sem hafa aðgang að samvinnutalhópnum hafa aðgang að öllum möppum.
Aðgangur að talhópum skiptist á eftirfarandi vegu:
Rauðir talhópar – Daglegt viðbragð s.s; lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningar, Landhelgisgæslan og sjúkrahús.
Bláir talhópar – Þeir sem hafa aðgang að rauðum talhópum ásamt auknu viðbragði s.s; björgunarsveitum, Rauðakrossinum og flugvöllum.
Gulir talhópar – Þeir sem hafa aðgang að rauðum og bláum talhópum ásamt innviðum s.s; Vegagerðin, bæjarfélög, hafnir, fjarskiptafyrirtæki, veitustofnanir, strætó og þjóðgarðar. Einnig geta aðrir jaðaraðilar sem koma að verkefnum viðbragðsaðila s.s. ferðaþjónustur, verktakar og eða verkfræðistofur sótt um aðgang að völdum Gulum talhópum.
Samvinnutalhópnum er skipt í möppur, Blár 1 til Blár 10. Í gunninn er ein mappa ætluð til nota í hverju lögreglustjóra umdæmi, eins og mynd 1 sýnir. Allar möppurnar eru svo skipulagðar eins svo auðvelt sé að læra á kerfið. Mynd 2 sýnir svo skipulega hverrar möppu. Ath að talhópar eru forritaðir í talstöðvar eftir aðgengi. Daglegt viðbragð s.s. lögregla og sjúkrabílar, eru með Rauða talhópa en t.d. RKÍ og björgunarsveitir hafa ekki aðgang að þeim hópum.
TETRA er fjarskiptastaðall sem var samþykktur af Evrópusambandinu 1995. Uppbygging TETRA kerfis á Íslandi hófst 1999 og var kerfi komið í notkun árið 2000. Árið 2005 tók svo Neyðarlínan við rekstri á báðum kerfum og sameinaði þau í eitt kerfi frá Motorola.
TETRA kerfið byggir á 2G framsímatækninni. Aðal virknin í TETRA kerfinu byggir á skiptitali, þó svo að hægt sé að hafa símtöl á milli tækja. Allir notendur (tæki) í TETRA kerfinu fá úthlutað auðkennisnúmeri (símanúmeri) sem er 7 stafir og er kerfið tengt venjulega símkerfinu.
Í kerfinu eru sendastöðvar sem tengdar eru miðeiningum og kerfið virkt sem ein heild. Þ.e.a.s. allir notendur geta talað við alla aðra notendur. Samskiptum er stýrt með talhópum sem forritaðir eru í talstöðvar hverrar notendaeiningar. Ekki skiptir þá máli hvar notandi er staðsettur. Svo framarlega sem tenging næst við kerfið geta aðilar sem eru með opið fyrir sama talhóp, átt samskipti með skiptitali.
Rekstur TETRA kerfis á Íslandi hefur verið ákveðinn til a.m.k. 2032 með samningi við Motorola. Miðeiningar TETRA kerfisins voru stækkaðar fyrir nokkru en kerfið gat áður einungis verið með 200 senda. Nú eru fjöldi senda kominn vel yfir 200 og hægt að stækka kerfið enn meira ef þörf verður á.
Mikilvægt er að viðbrögð við sambandsleysi séu samhæfð. Þ.e. að allir aðilar bregðist eins við og geti þá verið í sambandi sín á milli með þeim takmörkunum sem eru.
Við sambandsleysi í Tetra talstöð geta verið eftirfarandi skýringar:
Viðbrögð við fyrsta lið er að ath hvort að aðrar Tetra stöðvar á svæðinu séu í sambandi. Ef svo er, þá er líklega bilun í viðkomandi Tetra stöð.
Viðbrögð við öðrum og þriðja lið eru að stilla Tetra stöðina yfir á DMO. Í flestum tilfellum ætti að velja DMO Neyð. Ath að allir viðbragðsaðilar hafa aðgang að DMO Neyð og þeirra viðbragð við sambandsleysi er einnig að fara yfir á DMO Neyð.
DMO stendur fyrir Direct Mode eða „beint samband“ á íslensku. Þetta þýðir að TETRA talstöðvar reyna samskipti beint á milli stöðva án þess að nota TETRA kerfið. Þá er viðkomandi TETRA stöð háð sjónlínu sambandi. Samband milli stöðva er því yfirleitt takmarkað við það sem notendur sjá sjálfir. Mikilvægt er að notendur átti sig á að fjarskipti verða mjög takmörkuð og flóknari en venjulega, þegar DMO er notað.
Í þeim tilfellum sem lögregla er að vinna í beinum lögreglumálum ætti að velja DMO Lögregla.
Þessi samhæfðu viðbrögð eiga við hvort sem er við bilun í TETRA kerfi eða á stöðum sem eru utan sambands við TETRA kerfið.
