Flóð

Flóð af völdum leysinga og mikilla rigninga hafa valdið tjóni á ræktarlandi, vegakerfi og byggð. Veðurstofan er með kerfisbundinn og samfelldan rekstur vatnamælingastöðva í ám, stöðuvötnum, lónum og grunnvatni og fylgst er náið með vatnshæð og viðvörunum er komið til almennings við ákveðinn viðmiðunarmörk.

Ef hætta er á flóði

  • Fylgist með fjölmiðlum og veðurspám
  • Hreinsið rennur og haldið niðurföllum  hreinum
  • Skoðið rýmingarleiðir frá heimili, skóla og vinnustað
  • Er heimilið tryggt fyrir skemmdum vegna flóða
  • Takið rafmagn af, ef vatn flæðir inn í hús
  • Sandpokar geta tímabundið varið, að vatn flæði inn í hús
  • Varist að setja raftæki, eiturefni og verðmæti þar sem þau geta blotnað
  • Hugið að búfénaði og gæludýrum þegar hætta er á flóðum
  • Útbúið  neyðarkassa/viðlagakassa með helstu nauðsynjum og neyðarbúnaði

Sóttvarnalæknir ber ábyrgð á viðbúnaði vegna heimsfaraldurs og sóttvarna og vinnur náið með almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu var unnin árin 2005 – 2008. Þegar heimsfaraldur inflúensu skall á árið 2009 var unnið markvisst eftir viðbragðsáætluninni með það að markmiði að draga úr alvarlegum afleiðingum á heilsufar og samfélag. Það sama gerðist þegar brugðist var við COVID-19 heimsfaraldrinum árið 2020 – sjá nánar á vefsíðunni covid, sem sérstaklega var sett upp til að bregðast við faraldrinum.

Í eldgosum hefur sóttvarnalæknir varað við áhrifum gosefna í andrúmsloftinu, sem geta haft áhrif á heilsu manna. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Landlæknisembættisins.

Embætti landlæknis er ætlað að stuðla að heilbrigði landsmanna, m.a. með því að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og efla lýðheilsustarf í landinu og ber embætti landlæknis ábyrgð á framkvæmd sóttvarna.

Geislavarnir ríkisins annast öryggisráðstafanir gegn geislun frá geislavirkum efnum og geislatækjum. Einnig stunda Geislavarnir rannsóknir á sviði geislavarna, svo og vöktun og rannsóknir á geislavirkum efnum í matvælum og umhverfi Sjá nánar á vefsíðu Geislavarna ríkisins.