Þjónustumiðstöð almannavarna er tímabundin miðstöð sem stofnuð er af Ríkislögreglustjóra til að veita stuðning við einstaklinga og starfsfólk sveitarfélaga sem verða fyrir áhrifum alvarlegra atburða.
Þjónustumiðstöðin styður við þau sem þurfa að takast á við afleiðingar tiltekins atburðar auk þess sem að starfsfólk sveitarfélags og sveitarstjórnir stendur til boða stuðningur og ráðgjöf. Stuðningurinn getur verið í formi upplýsingagjafar, matar, fatnaðar eða sálræns stuðnings. Markmiðið er að draga úr álagi á íbúa með því að bjóða upp á eina miðstöð þar sem hægt er að fá alla nauðsynlega þjónustu og ráðgjöf.
Þjónustumiðstöðin starfar í nánu samstarfi við Rauða krossinn, sveitarfélög, ráðuneyti og undirstofnanir þeirra. Samráð er haft við hlutaðeigandi sveitarstjórnir um starfsemi miðstöðvarinnar til að tryggja skilvirka og samhæfða þjónustu. Þetta samstarf tryggir að þjónustan sé í samræmi við þarfir og aðstæður íbúa á hverjum stað.
Stofnun þjónustumiðstöðvar almannavarna byggir á lögum um almannavarnir nr. 82/2008. Samkvæmt 14. gr. laga um almannavarnir er ríkislögreglustjóra heimilt, samhliða rekstri samhæfingarstöðvar (SST), á hættustundu eða þegar hún er um garð gengin, að stofna tímabundið þjónustumiðstöð. Ráðuneyti og sveitarfélög, þar með taldar undirstofnanir þeirra, skulu samkvæmt sama ákvæði veita hinni tímabundnu þjónustumiðstöð lið við miðlun upplýsinga og þjónustu.
Þjónustumiðstöð almannavarna var stofnuð á Seyðisfirði í kjölfar skriðufalla sem urðu þar í desember 2020. Miðstöðin var sett á laggirnar til að veita íbúum og starfsfólki sveitarfélagsins stuðning og aðstoð við að takast á við afleiðingar skriðufallanna. Markmiðið var að tryggja að allir sem urðu fyrir áhrifum atburðarins myndu fá nauðsynlega aðstoð og upplýsingar á einum stað. Þjónustumiðstöðin starfaði í nánu samstarfi við sveitarfélagið Múlaþing, Rauða krossinn á Íslandi, björgunarsveitir og aðrar stofnanir. Samráð var haft við hlutaðeigandi sveitarstjórnir og aðra hagsmunaaðila til að tryggja skilvirka og samhæfða þjónustu.
Þjónustumiðstöð almannavarna var stofnuð í kjölfar rýmingar Grindavíkur vegna jarðhræringa í nóvember 2023. Miðstöðin var staðsett í Tollhúsinu í Reykjavík og síðar einnig í Reykjanesbæ. Hún veitti fjölbreytta þjónustu, þar á meðal upplýsingar, sálrænan stuðning, félagslega ráðgjöf og aðstoð við húsnæðis- og atvinnumál. Þjónustumiðstöðin var fyrsti viðkomustaður þeirra sem höfðu upplifað mikla röskun á daglegu lífi og þurftu stuðning í næstu skrefum.