Markmiðið með útgáfu leiðbeininga undir heitinu “Verum viðbúin” er sá að almenningur geti nýtt sér þær til að vera sjálfbjarga um nokkra daga skeið komi til þess að lítið sem ekkert aðgengi verði að rafmagni, vatni, veitukerfum, fjarskiptum og annarri þjónustu. Tíminn sem um ræðir gæti verið á bilinu 3 til 7 dagar.