Íslandi

Almannavarnir

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur það hlutverk að vernda líf og heilsu fólks, eignir og umhverfi gegn hættum af náttúruvöldum, slysum og öðrum válegum atburðum. Almannavarnadeild samhæfir viðbrögð við neyðarástandi og starfræktir Samhæfingarstöð.

Tilkynningar

Almannavarnanefnd skal skipuð lögreglustjóra þess umdæmis sem sveitarfélagið er í, fulltrúum úr sveitarstjórn og þeim fulltrúum sveitarstjórna sem í starfi sínu sinna verkefnum í þágu öryggis hins almenna borgara.